Styrkja Vofuna Áskrift RSS

Vofan

Til vinstri á næstu ljósum
Framsíða/Skoðanagreinar
Skoðanagreinar

Þegar Hamas réðist á Ísland

Þegar Hamas réðist á Ísland

Þann 17. mars í vor átti sér stað hrottaleg tilraun til manndráps í bílakjallara í Reykjavík sem vakti mikla athygli og umtal í samfélaginu og voru sjö manns upphaflega handteknir í tengslum við rannsókn málsins. Nú hefur málið fengið sinn gang í löggæslu- og réttarkerfinu og niðurstaða héraðsdóms hefur verið birt opinberlega: Þrír menn voru ákærðir fyrir árásina. Einn þeirra var sakfelldur fyrir tilraun til manndráps og dæmdur til fimm ára fangelsisrefsingar. Annar var sýknaður af tilraun til manndráps en sakfelldur fyrir stórfellda líkamsárás og dæmdur til átján mánaða fangelsisrefsingar. Sá þriðji var sýknaður þar sem sönnun þótti ekki hafa tekist um hvort hann hefði tekið þátt í atlögunni. 

Þetta er nú hin endanlega, opinbera niðurstaða nema áfrýjunardómstólar komist að annarri niðurstöðu um sekt og sýknu þessara þriggja manna út frá fyrirliggjandi gögnum. Réttlætinu fullnægt - eða hvað? 

Skömmu eftir árásina hófst nefnilega önnur atburðarás tengd málinu sem ekki rataði í dóminn yfir mönnunum eða umfjöllun fjölmiðla í kringum réttarhöldin en mun eflaust þykja eftirminnilegri í sögubókum framtíðarinnar en árásin sjálf: Umfjöllun Morgunblaðsins um sakborningana í málinu.

„Hamas-liðar á Höfðatorgi“ var forsíðufrétt Morgunblaðsins miðvikudaginn 25. mars síðastliðinn. Mbl.is birti svo frétt, keimlíka ef ekki nákvæmlega þá sömu og í prentútgáfunni, þar sem sagði meðal annars: „Hluti þeirra manna sem handteknir voru eftir grófa líkamsárás í bílakjallara á Höfðatorgi í Reykjavík er grunaðir um að tengjast vígasamtökum Hamas.”

Enginn höfundur var skrifaður fyrir þessari stórfrétt af innreið Hamas til Íslands. Hvort ritstjóri miðilsins skrifaði þessa frétt er ekki vitað en að minnsta kosti var málið talið svo alvarlegt í Hádegismóum að forsíðan dugði ekki til, heldur þurfti að fylgja fréttinni rækilega eftir á netmiðlum blaðsins. 

Lögregla fann sig knúna til að tjá sig um málið og birtist frétt á mbl.is sama dag þar sem lögregla segir það rangt að mennirnir sem um ræðir séu á lista alþjóðalögreglunnar yfir grunaða hryðjuverkamenn. Daginn eftir gaf lögreglan út yfirlýsingu þar sem sagði m.a.: „…vill embættið taka sérstaklega fram að á þessu stigi bendir ekkert til þess að þeir sem hafa verið handteknir í málinu hafi tengsl við Hamas-samtökin.“

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu virðist vera í sérstöku samstarfi við leyniþjónustuarm palestínska stjórnmálaflokksins Hamas og samnefndra hryðjuverkasamtaka ef marka má umfjöllun Morgunblaðsins.

Aldrei skal láta góða sögu gjalda sannleikans

Aðrir fjölmiðlar birtu svo þessa yfirlýsingu lögreglunnar. En Morgunblaðið og mbl.is stóðu frammi fyrir því að yfirmenn heimildarmanna sinna höfðu leiðrétt þá opinberlega og gerðu þá að sjálfsögðu það sem allir ábyrgir fjölmiðlar myndu gera í sömu stöðu: Drógu trúverðugleika lögregluyfirvalda í efa og gáfu með því í skyn að yfirstjórn lögreglunnar lygi að almenningi í einhvers konar samsæri til að breiða yfir landnám Hamas í Reykjavík. „Heimildarmennirnir eru trúverðugir, starfandi lögreglumenn sem vísuðu til myndefnisins og sögðu það benda til umræddra tengsla og að lögregla kannaði þau. Morgunblaðið ráðfærði sig við heimildarmennina um efnistök áður en fréttin var birt og þeir staðfestu hana”. Tók blaðið fram að heimildarmennirnir væru furðu lostnir yfir yfirlýsingu yfirmanna sinna.

Athugasemdakerfi samfélagsmiðlanna gáfu að sjálfsögðu ekkert eftir. Undir Facebook-færslu mbl.is um þessa frétt sem unnin var upp úr frétt Morgunblaðsins má finna fjölmargar athugasemdir. Reiði kallinn var áberandi en flest þau sem brugðust við gerðu það með reiði. Langflestar athugasemdirnar eru neikvæðar í garð útlendinga, og fjöldi þeirra er í „náði þér“ og „ég sagði þér það“ tón. 

Frétt Morgunblaðsins tókst nefnilega að gera nákvæmlega það sem henni var ætlað að gera: Hræða, vekja upp tilfinningar og sá fræjum tortryggni í garð útlendinga. Fréttin er í raun skólabókardæmi um það.

Nú, átta mánuðum síðar, er dómur fallinn í þessu tiltekna máli, líkt og áður greinir, og öllum aðgengilegur á netinu. Hann er langur og ítarlegur — og þar er nákvæmlega ekkert sem bendir til þess að sakborningar hafi átt sér neina sögu um hryðjuverkastarfsemi eða nokkra tengingu við Hamas. Ekki neitt. 

Umfjöllun Morgunblaðsins á sínum tíma byggði meðal annars á því að rannsakendur hefðu fundið myndir og myndbönd í símum handteknu af þeim með AK-47 riffli, að þeir hefðu borið Hamas-merki og að hluti þeirra væri á lista Interpol yfir grunaða hryðjuverkamenn. Í dómnum, sem rekur ítarlega málsatvik, rannsókn lögreglu og skýrslutökur fyrir dómi, er farið á nokkrum stöðum yfir niðurstöður úr rannsóknum á símagögnum og þar kemur ekkert sem rennir stoðum undir að fullyrðingar Morgunblaðsins um niðurstöður þeirra eigi nokkuð skylt við raunveruleikann.

Þá er heldur ekkert sem bendir til þess að niðurstöður neinna rannsóknaraðgerða í tengslum við málið hafi leitt til rannsókna á ásökunum Morgunblaðsins um vopnalagabrot, hryðjuverkabrot eða tengsl við skipulagða glæpastarfsemi. Reyndar bendir dómurinn þvert á móti til þess að árásin hafi komið til í tengslum við ágreining í tengslum við smásölu fíkniefna. Það gerir þessa hrottalegu og ömurlegu árás ekkert skárri — en er nokkuð langan veg frá árás Hamas-liða á gangandi vegfarendur í bílakjöllurum Reykjavíkur.

Eftir á að hyggja voru líklega mistök að færa Morgunblaðið úr daglegu samneyti við fólk bókstaflega út í móa.

Ósvaraðar spurningar

Eftir sitja fjölmargar spurningar. Hvaðan komu þá þessar upplýsingar sem blaðið taldi sig hafa undir höndum? Hvað varð þess valdandi að blaðið tók þá risastóru ákvörðun að saka yfirstjórn lögreglunnar um lygar þegar hún gaf út yfirlýsingu sem nú virðist hafa  verið algjörlega sannleikanum samkvæm? Af hverju setur rótgróinn fjölmiðill sem lýtur siðareglum Blaðamannafélags Íslands svona frétt í loftið og það á forsíðu sinni? 

Fjölmiðlar gegna mikilvægu hlutverki í samfélaginu. Þeim er ætlað að koma upplýsingum á framfæri og eins og segir í siðareglum BÍ: „Blaðamaður hefur sannleikann að leiðarljósi, stendur vörð um tjáningarfrelsið og frjálsa fjölmiðlun og rétt almennings til upplýsinga, svo veita megi nauðsynlegt aðhald í lýðræðisþjóðfélagi.“

Að sjálfsögðu geta fjölmiðlar líka gert mistök. Við gerum öll mistök. Í þessu tilfelli gerði Morgunblaðið mistök. Blessunarlega getur fjölmiðillinn lagað ákveðinn hluta mistaka sinna en í 3. gr. segir að blaðamaður skuli leiðrétta rangfærslur ef þess er þörf. Með hliðsjón af niðurstöðu dómsmálsins styttist mögulega í leiðréttingu Morgunblaðsins á fyrri fréttaflutningi sem olli miklum deilum og úlfúð í samfélaginu. Það er vonandi. En líklega er óráðlegt að halda í sér andanum meðan beðið er.

Aðrar spurningar eru ef til vill meira aðkallandi:  Mun þorri lesenda Morgunblaðsins og mbl.is lesa sig í gegnum forsendur og niðurstöður sakadóms sem hljóða upp á 69 blaðsíður? Munu aðrir fjölmiðlar ræða niðurstöðu dómsins til hlítar, þar með talið með hliðsjón af fréttaflutningi Morgunblaðsins af málinu á rannsóknarstigi?

Mun Morgunblaðið draga til baka augljóslega haldlausar dylgjur sínar um starfsemi Hamas á Íslandi? Kannski endurskoða trúverðugleika þeirra heimildarmanna sem það stóð svo þétt við bakið á þó yfirmenn þeirra höfnuðu frásögnum þeirra opinberlega? Jafnvel spyrja sig hvort það hafi leyft stjórnmálaskoðunum blaðamanna sinna að valda þeim dómgreindarbresti í mikilvægum og ábyrgðarmiklum störfum þeirra fyrir samfélagið?

Við getum svo sannarlega vonað. En skaðinn er því miður skeður. Og þegar öllu er á botninn hvolft er erfitt að draga þá ályktun að fréttinni hafi nokkurn tímann verið ætlað það hlutverk að fræða fólk og virða rétt almennings til upplýsinga. Henni virðist þvert á móti hafa verið ætlað nákvæmlega það sem henni tókst: Að hræða fólk, að vekja upp neikvæðar tilfinningar í garð útlendinga og síðast en ekki síst að ala á tortryggni og sundrungu í samfélaginu.

Skoðanagreinar

Smelltu á fréttabréfið til að fá áskrift að Afturgöngunni

Afturgangan er vikulegt fréttabréf Vofunnar með nýjustu greinum og fréttaskýringum og er sent beint í innhólfið þitt. Áskrift er endurgjaldslaus og hægt að segja henni upp hvenær sem er.